Starfsfólk veitingastaðarins Ítalíu gekk í dag inn á skrifstofur Eflingar, til að krefjast þess að stéttarfélagið léti af aðgerðum sínum í garð staðarins vegna meints launaþjófnaðar. Formaður Eflingar segir af og frá að látið verði af aðgerðum vegna þjófnaðarins, sem eigandi Ítalíu segir ekki eiga stoð í raunveruleikanum.
Frumvarp þingmanna Sjálfstæðisflokksins leggur til að afnema lög um orlof húsmæðra. Meðlimur í orlofsnefnd húsmæðra mótmælir því og segir að það yrði skerðing á lífsgæðum fyrir hundruð kvenna.
Þá heyrum við í innviðaráðherra um Ölfusábrú, verðum í beinni útsendingu frá landsfundi VG sem hófst í dag og í beinni frá Þjóðleikhúsinu þar sem nýtt verk verður frumsýnt í kvöld.