„Ég kaus rétt. Ég kaus Heru og náði því. En þegar sonur minn ætlaði að kjósa Bashar þá slitnaði línan bara strax. Hann náði aldrei að hringja en reyndi nokkrum sinnum,“ segir Lars Jóhann Andrésson, fjölskyldufaðir frá Hornafirði í samtali við Vísi.
Fjölskyldan keyrði rúma þúsund kílómetra til að fylgjast með Söngvakeppninni í Laugardalshöll. Hann segir það hafa verið rosalega gaman að hafa verið viðstaddur keppnina í gær en fannst hann knúinn til þess að láta RÚV vita af því að ekki hefði gengið að greiða atkvæði til allra í gær.
„Okkur langaði svo að láta vita af þessu. Sjálfur var ég ekki ósáttur enda gat ég kosið Heru. En rétt skal vera rétt.“
Appið til skoðunar
Fréttastofu hefur borist fleiri ábendingar frá fólki sem ekki gat kosið Bashar í gær. Þá er umræða um málið á Facebook hópnum Júróvisjón 2024. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar, segir í skriflegu svari til Vísis að ekkert sé að frétta í dag af skoðun RÚV á kosningaappinu.
Vísir greindi frá því í gær að appið yrði skoðað eftir að nokkur fjöldi fólks fékk kosninganúmer Heru Bjarkar á skjáinn eftir að hafa reynt að kjósa Bashar.
Rúnar tók fram í samtali við Vísi að atkvæðafjöldinn sem um ræðir sé ekki það afgerandi að hann hafi haft áhrif á úrslitin. Opinberar tölur vegna atkvæðagreiðslunnar hafa ekki verið gefnar upp.
„Svona athugasemdir koma á hverju ári. Við könnum auðvitað alltaf málið. Þessar athugasemdir snúa að þeim sms-atkvæðum sem hægt er að senda í gegnum appið, RÚV Stjörnur. Engar athugasemdir hafa verið gerðar vegna annarra kosningaleiða sem voru í boði,“ sagði Rúnar í gærkvöldi.