Lesstillingin er hönnuð fyrir og með fólki með sjónskerðingu, blindu og lesblindu. Hún hjálpar til við að bæta skjálestur með áherslu á sérsníðanleg birtuskil, leturstærð, talgervil, uppsetningu blaðsíðna og leturgerðir. Þegar forritið hefur verið sótt samþættist það flýtistillingunum þínum og auðvelt er að nálgast það í forritum og af vefsíðum.
Leiðbeiningar:
Til að hefjast handa:
1. Sæktu lesstillinguna og settu hana upp í gegnum Play Store
2. Finndu lesstillinguna á heimaskjánum og ýttu á hana til að opna hana
3. Lestu leiðbeiningarnar og þær beina þér áfram í stillingarnar í lokin
4. Í stillingunum skaltu ýta á „Lesstilling“ og kveikja á „Flýtileið lesstillingar“ til að veita lesstillingunni aðgang að tækinu
5. Farðu eftir leiðbeiningunum á https://support.google.com/accessibility/android/answer/7650693 til að setja upp mismunandi aðgangsstaði fyrir lesstillinguna
Helstu eiginleikar:
• Uppsetning sem auðveldar einbeitingu: Lesstillingin býður upp á sérsníðanlega uppsetningu efnis án óþarfa texta, til að auðvelda lestur og einbeitingu
• Talgervill: Hlustaðu á upplestur efnis með því að smella á einn hnapp. Veldu úr mörgum mismunandi, hágæða röddum fyrir lengri lestur. Auðvelt að nálgast hljóðstýringar til að spóla til baka, spóla áfram og breyta leshraða á ferðinni
• Breyttu gerð og stærð leturs: Veldu mismunandi stærðir, gerðir og lit leturs ásamt línubili sem henta þínum þörfum
• Skjótur aðgangur: Þegar lesstillingin hefur verið sótt samþættist hún viðmóti símans svo hægt sé að nálgast hana fljótlega.
• Stuðningur fyrir mörg tungumál: Lesstillingin styður ensku, frönsku, ítölsku og spænsku og verður fleiri tungumálum bætt við síðar
• Samhæft Talkback: Auðvelt er að nota lesstillinguna þegar skjálesarinn er notaður.
• Hönnuð með persónuvernd í huga: Efni úr símanum þínum er aldrei deilt.
Taktu þátt í https://groups.google.com/forum/#!forum/accessible til að koma með ábendingar og fá vöruuppfærslur.
Kröfur:
• Í boði fyrir síma með Android 9 eða nýrri útgáfu
• Lesstillingin styður ensku, frönsku, ítölsku og spænsku eins og stendur
Tilkynning vegna heimilda:
• Aðgengisþjónusta: Vegna þess að forritið er aðgengisþjónusta getur það fylgst með aðgerðum þínum og efni í gluggum.